BRÚA NÁMSLÁN
Réttur þinn á persónuvernd er Brúa mjög mikilvægur. Við leggjum áherslu á að halda uppi góðri stefnu í umgengni okkar við persónuupplýsingar, hvort sem þær eru safnaðar og varðveittar á rafrænu formi, á pappír eða öðrum sambærilegum hætti.
Stefnan okkar á sviði skráningar, vörslu og vinnslu persónuupplýsinga er mjög örugg og við reynum alltaf að fara varlega með þær. Það er okkar markmið að tryggja að þínar persónuupplýsingar séu í öruggum höndum hjá okkur.

Persónuverndarstefnan vísar til 17. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, sbr. 13. og 14. gr. Einnig reglugerð Evrópuþingsins og ESB, 2016/679 (GDPR), lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Persónuverndarstefna þessi segir til um hvaða persónuupplýsingum Brúa safnar, hvers vegna, hversu lengi upplýsingarnar verði geymdar, hvert þeim kann að vera miðlað og hvernig öryggi upplýsinganna er tryggt. Stefnt er að því að starfsmenn, viðskiptavinir og aðrir tengdir aðilar séu meðvitaðir um hvernig fyrirtækið safnar og vinnur persónuupplýsingar.
Brúa meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Ábyrgðaraðili er Brúa lánafélag sem veitir viðskiptavinum sínum námslán.
Brúa ehf er skráð í fyrirtækjaskrá, hlutafélagaskrá og firmaskrá
Frekari upplýsingar um fyrirtækið má nálgast á heimasíðunni www.brua.is. Hægt er að senda skriflega fyrirspurn til fyrirtækisins um meðferð persónuupplýsinga á netfangið brua@brua.is.
Fyrirspurnir og beiðnir skráðra einstaklinga um meðferð persónuupplýsinga, þ.m.t. um réttindi skv. 8.0 hér að neðan, skal senda á netfangið brua@brua.is, merkt “Persónuvernd”. Berist svar ekki innan hæfilegs tíma, eða telji einstaklingur á rétt sinn gengið, á hann rétt á að leggja fram kvörtun til Persónuverndar (www.personuvernd.is).
Brúa vinnur meðal annars um upplýsingar um fjármál, persónuupplýsingar og almennar tengiliðaupplýsingar í þeim tilgangi að geta veitt viðskiptavinum fyrirtækisins þá þjónustu sem þeir óska eftir. Vinnsla persónuupplýsinga getur verið nauðsynleg á grundvelli samnings við viðskiptavin, ákvæða laga, með samþykki viðskiptavinar og vegna hagsmuna Brúa.
Viðskiptavini velur að veita persónuupplýsingar. Séu upplýsingar ekki veittar kann það að hafa áhrif á möguleika Brúa til að veita viðskiptavini umbeðna þjónustu, þeas námslán.
Auk þeirra almennu upplýsinga sem fram koma í köflum 3.0–7.0 hér á eftir, eru hér tilgreindir þeir vinnslutilgangir sem fela í sér miðlun persónuupplýsinga til þriðja aðila eða áhættumesta vinnslu Brúa á persónuupplýsingum, ásamt lagagrundvelli, viðtakendum og varðveislutíma hverrar vinnslu:
| Vinnslutilgangur | Lagagrundvöllur | Viðtakandi | Varðveislutími |
|---|---|---|---|
| Umsókn um námslán og mat á lánshæfi/greiðslugetu | Samningur (undirbúningur að samningsgerð) og lagaskylda skv. lögum nr. 33/2013 um neytendalán og reglugerð nr. 920/2013 | CreditInfo Lánstraust hf., kt. 710197-2109 (lánshæfis- og greiðslumat, upplýsingar um skuldastöðu) | Á meðan umsókn/lánasamband varir, sbr. kafla 5.0 |
| Áreiðanleikakönnun og skimun gagnvart þvingunarráðstöfunum (m.a. gagnvart alþjóðlegum viðskiptaþvingunum og einstaklingum í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla) | Lagaskylda skv. lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og lögum nr. 68/2022 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerðra | Veitendur skimunarþjónustu (gagnvart alþjóðlegum þvingunar- og PEP-listum) og, eftir atvikum, lögbær yfirvöld (skrifstofa fjármálagreininga lögreglu) | Skv. lögum nr. 140/2018, að lágmarki 5 ár frá lokum viðskiptasambands |
| Innheimta vanskila, þ.m.t. milliinnheimta og löginnheimta | Lögmætir hagsmunir Brúa af innheimtu réttmætra krafna og samningur | Lögmannsstofa/löginnheimtuaðili sem tekur við máli við afhendingu til löginnheimtu | Þar til krafa er að fullu greidd, felld niður eða fyrnist, sbr. lög nr. 150/2007 |
| Skráning á vanskilaskrá | Lagaskylda/lögmætir hagsmunir, sbr. lög nr. 33/2013 um neytendalán | CreditInfo Lánstraust hf. (vanskilaskrá), hafi vanskil staðið í 90 daga eða lengur | Skv. reglum CreditInfo um vanskilaskrá |
| Bókhald og skattskil | Lagaskylda skv. lögum nr. 145/1994 um bókhald og skattalögum | Endurskoðendur og skattyfirvöld eftir atvikum | 7 ár frá lokum viðkomandi reikningsárs |
Tilgangur með vinnslu persónuupplýsinga er að veita viðskiptavinum þá þjónustu sem óskað er eftir og fyrirtækið býður upp á. Ef upplýsinga er aflað frá öðrum en einstaklingi sjálfum er það gert samkvæmt umboði hans og upplýst hvaðan upplýsingarnar koma.
Persónuupplýsingar eru varðveittar á meðan viðskiptasamband varir eða eins lengi og nauðsynlegt er miðað við vinnslu og skilmála samninga, nema þegar lög og reglur kveða á um lengri geymslutíma s.s. ef um er að ræða gögn sem falla undir bókhaldslög eru þau varðveitt í 7 ár frá lokum viðkomandi reikningsárs. Þegar gögn eru ekki lengur nauðsynleg til að uppfylla samningsbundnar skyldur eða lagaskyldur er þeim eytt.
Auk þess sem lög kunna að skylda Brúa til að afhenda persónuupplýsingar til eftirlitsstofnana, löggæsluyfirvalda eða dómstóla, afhendir Brúa persónuupplýsingar reglubundið til tiltekinna móttakenda sem lið í venjubundinni starfsemi félagsins — sjá nánar töfluna í kafla 3.1, þ. á m.:
Þeir sem veita viðtöku upplýsingum um viðskipta- og/eða einkamálefni viðskiptavina eru bundnir þagnarskyldu með sama hætti og gildir um starfsmenn fyrirtækisins, og vinnsla á vegum Brúa er eftir atvikum bundin sérstökum vinnslusamningi skv. 25. gr. laga nr. 90/2018.
Brúa notast við tölvupóstþjónustuna Resend, sem er hýst í Bandaríkjunum, til að senda tilteknar tilkynningar og samskipti til viðskiptavina (m.a. staðfestingar og svör við fyrirspurnum af heimasíðunni). Við þá miðlun byggir Brúa á viðurkenndum stöðluðum samningsskilmálum ESB (Standard Contractual Clauses) eða öðrum viðeigandi verndarráðstöfunum skv. V. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679, til að tryggja að vernd persónuupplýsinga við miðlunina sé sambærileg þeirri sem gildir innan EES.
Á Brúa hvílir skylda að gæta að öryggi þeirra persónuupplýsinga sem fyrirtækið vinnur með. Brúa leitast við að grípa til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra ráðstafana til að vernda persónuupplýsingar. Þær öryggisráðstafanir lúta einkum að aðgangsstýringu, fræðslu til starfsmanna og samskiptaöryggi.
Einstaklingur á rétt á staðfestingu frá Brúa á því hvort unnið sé með persónuupplýsingar um hann og ef svo er til aðgangs að þeim upplýsingum.
Einstaklingur á rétt á að fá tilteknar persónuupplýsingar um sig, sem hann hefur sjálfur látið af hendi, á skipulegu, algengu tölvulesanlegu sniði. Eftir atvikum á einstaklingur rétt á að Brúa flytji slíkar upplýsingar til annars ábyrðaraðila sé það tæknilega mögulegt.
Einstaklingur á rétt á að óáreiðanlegar persónuupplýsingar sem varða hann séu leiðréttar og í ákveðnum tilvikum að þeim sé eytt.
Einstaklingur getur andmælt vinnslu persónuupplýsinga í þágu beinnar markaðssetningar og vinnslu persónuupplýsinga sem fer fram á grundvelli lögmætra hagsmuna vegna sérstakra aðstæðna er varða hann. Í kjölfar slíkra andmæla verða persónuupplýsingar ekki unnar frekar nema lagaskilyrði til þess séu til staðar.
Þá hefur viðskiptavinur rétt á að leggja fram kvörtun til Persónuverndar telji hann að vinnsla Brúa á persónuupplýsingum hans brjóti gegn gildandi lögum.
Komi fram andmæli viðskiptavinar við vinnslu persónuupplýsinga mun þeirri vinnslu hætt nema unnt sé að sýna fram á lagaskyldu eða lögmæta hagsmuni sem ganga framar hagsmunum viðskiptavinar.
Hægt er að hafa samband við Brúa með því að senda póst á netfangið brua@brua.is. Viðskiptavinur getur óskað eftir símtali með tölvupósti á netfangið brua@brua.is
Brúa er heimilt að breyta þessari persónuverndarstefnu og bæta við hana hvenær sem er og taka slíkar breytingar gildi án fyrirvara. Slíkar breytingar kunna t.d. að vera gerðar til að samræma persónuverndarstefnuna við gildandi lög og reglur er varða persónuvernd hverju sinni. Allar breytingar á stefnunni verða birtar á vefsíðunni www.brua.is og þær tilkynntar viðskiptavinum á tryggan hátt, svo sem með skilaboðum í tölvupósti.
Útgáfa: 1.1 — síðast uppfærð 15.09.2026.